Gyðjur | Listasafn Íslands

Gyðjur | Listasafn Íslands
Gyðjur
Sigurjón Ólafsson
5.2.2016
— 28.8.2016
Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi setur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar upp sýningu á klassískum portrettum af konum í túlkun Sigurjóns ásamt öðrum verkum hans, sem höggvin eru í stein eða tré þar sem kvenímyndinni – Das Ewig-Weibliche – er lýst og tekur á sig ímynd gyðjunnar. Sigurjón Ólafsson (1908–1982) er meðal þekktustu portrettlistamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlitsmyndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu, en kvenportrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undanskilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni, Guðrúnu Gísladóttur, árið 1938.
5. febrúar – 28. ágúst 2016
kl. 02:20
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík
Listasafn Íslands
Heimasíða


