Hörður - Gerðarsafn

Hörður - Gerðarsafn
Skip to content
← Sýningar
Hörður
04.02.2026
–03.05.2026
Hörður Ágústsson
Sýningarstjórn
Brynja Sveinsdóttir og Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir)
Sýningarskrá
Sýningarskrá
Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn kjarna sjónmenningar. Hörður þróaði nálgun sína út frá innblæstri sem hann sótti úr umhverfi sínu og hugmyndafræði um eðli og möguleika sjónlista.



