May Show Signs of Minor Defects

Sveinn Fannar Jóhannsson hefur lengi unnið með fundnar ljósmyndir og annað efni sem hefur lent utan við upprunalegt samhengi sitt. Við sjáum myndir af pörum, af strandlengju, af óskreyttu jólatré. Flokkarnir eru kunnuglegir en hnitin horfin. Það sem er þó svo grípandi er ekki aðeins treginn sem þessar týndu myndir bera með sér, heldur það sem þær draga í leiðinni fram. Þá veltur merking þeirra á einhvers konar umgjörð, það er að segja á því að einhver gefi þeim samhengi. Án slíkrar festu fer myndin á flakk og sýnir hversu mjög það sem við sjáum mótast af því sem áhorfandinn les í hana út frá s



