Nánd hversdagsins

Sýningin var hluti af Ljósmyndahátíð Íslands sem er tvíæringur og stóð yfir 17.–26. janúar. Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst. Sýningin hverfist um þá hugmynd að ákveðin augnablik sé aðeins unnt að fanga með því að ljósmyndarinn byggi upp nánd, eftirtekt og íhygli gagnvart viðfangsefnum sínum yfir langan tíma. Verkin á sýningunni bera þess glöggt vitni hve vel ljósmyndararnir þekkja þá sem þeir eru að mynda enda er nálgun þeirra þrungin væntum



