Of the North
Vídeóinnsetning Steinu af Norðrinu frá árinu 2001 er áhrifamikið og töfrandi verk sem lætur engan ósnortinn. Að geta tekið upp hljóð og mynd í rauntíma opnaði nýjar víddir í heimi sjónlista á sjöunda áratug síðustu aldar. Þau hjónin Steina og Woody Vasulka komust í kynni við framsækna listamenn á sviði nýrra miðla er þau bjuggu í New York þar sem þau ráku um tíma sýningar- og samkomustað fyrir hljóð- og vídeólistamenn sem þau opnuðu árið 1971 og kallaðistThe Kitchen. Þetta var tími mikilla tækniframfara á sviði rafrænnar menningar ekki síður en geimvísinda.
5. febrúar 2021 – 9. janúar 2022
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík
Listasafn Íslands
Heimasíða


