Þorgeir Ólason / Toggi: Í ágripi

Í þessari seríu lágmynda fangar Toggi / Þorgeir Ólason óræðar tilfinningar og upplifanir úr eigin lífi. Tilfinningar sem margir kannast við. Yfirborðið er fágað, slétt og fellt eins og nútíma maðurinn vill vera séður, lætur eins og ekkert sé að meðan allt er iðandi undir niðri, rétt eins og í myndverkinu þar sem allt ólgar og kraumar undir yfirborðinu óhlutbundin mynstur djúpstæðra tilfinninga eins og aðdáunar, ástar, fyrirgefningu, samúðar, virðingar, trausts, uppgjafar, skammar, sektar og reiði. Tilfinningar sem birtast oft í logni en stundum í hávaða roki samfélagsins og þá sem raunveruleg



