Verkefnastjóri vinnustofa

Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) leitar að verkefnastjóra í 70% starf til að hafa umsjón með vinnustofum félagsins og daglegum rekstri þeirra. Starfið gegnir lykilhlutverki í þjónustu við leigjendur, samskiptum við hagsmunaaðila og þróun starfseminnar í samstarfi við stjórn SÍM. Verkefnastjóri vinnustofa heyrir undir framkvæmdastjóra. Leitað er að aðila sem getur unnið sjálfstætt en jafnframt náið með framkvæmdastjóra og formanni SÍM.
14. júlí – 22. júlí 2026
SÍM – Samband íslenskra myndlistarmanna
Hafnarstræti 16
Reykjavík
SÍM – Samband íslenskra myndlistarmanna
Heimasíða


