Yfirlitssýning | Listasafn Íslands

Yfirlitssýning | Listasafn Íslands
Yfirlitssýning
Valtýr Pétursson
24.9.2016
— 26.3.2017
Listasafnið
Valtýr Pétursson (1919−1988) var brautryðjandi abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, mikilvirkur gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi listamanna. Sýningunni sem opnar í Listasafni Íslands í september 2016 er ætlað að gefa yfirlit yfir fjölbreyttan listferil Valtýs. Síðasta yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar var haldin í Listasafni Íslands árið 1986 og er því löngu tímabært að kynna þennan fjölhæfa myndlistarmann fyrir nýjum kynslóðum og veita þeim sem eldri eru tækifæri til að endurnýja kynnin, en margt í verkum Valtýs kallast á við samtíma okkar og gefur tilefni til að skoða þau í nýju ljósi.
24. september 2016 – 26. mars 2017
kl. 09:20
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík
Listasafn Íslands
Heimasíða


