Netverslun
260 Reykjanesbæ

Opið 24/7
Alla daga

644 6400

Pappír fyrir alcohol blek

6.900 kr.

Fáanlegt í verslun

Vnr. K10OWCP912-25 Vöruflokkar , Tags , , Brand:

Fáanlegt í verslun

Pappír fyrir alcohol blek – Grafix Craft Plastic A4 (25 stk) – Við mælum með þessum!

Ertu að leita að besta yfirborðinu fyrir alcohol blek? Við höfum prófað margar gerðir af pappír, en Grafix Craft Plastic er í algjörum sérflokki. Þetta er ekki hefðbundinn pappír heldur sérhæfðar plastarkir (.010″ þykkt) sem draga ekki í sig vökva, sem er lykillinn að fallegri listsköpun með alcohol bleki.

Af hverju mælum við sérstaklega með þessum?
Stærsti kosturinn við þessar arkir er að blekið þornar ekki strax. Þú færð dýrmætan aukatíma til að vinna með litina og láta þá flæða. Þegar þú blandar blekinu við alkóhól á þessu yfirborði, þá hreyfist það ótrúlega vel og myndar dásamleg mynstur sem erfitt er að ná fram á öðrum pappír.

Helstu kostir:

  • Besti pappírinn fyrir alcohol blek: Blekið flýtur ofan á og gefur þér meiri tíma til að vinna með verkið.
  • Vatnsheldur og hitaþolinn: Þolir vel vinnslu með hitabyssu án þess að bogna eða skemmast.
  • Sýrufrír og endingargóður (Archival): Verkin þín gulna ekki og haldast í fullkomnu lagi um ókomna tíð.
  • Auðvelt að skera: Hægt er að klippa arkirnar með venjulegum skærum eða nota skurðarvélar (die-cut).
  • Hreinsanlegt: Ef þú gerir mistök geturðu þurrkað blekið af með alkóhóli og byrjað aftur!
  • Stærð: 9″ x 12″ (u.þ.b. A4) – 25 arkir í pakka.

Hentar fullkomlega fyrir:

  • Alcohol blek list (Alcohol Ink Art).
  • Vatnslitamálun þar sem óskað er eftir miklu flæði.
  • Stenslavinnu, kortagerð og dagbókaskreytingar (journaling).