Gjörningakvöld: Polyphony of Voices

Við erum spennt að taka á móti ykkur á næsta Gjörningakvöldi en í þetta sinn verður viðburðurinn undir sýningarstjórn Oyun Daria Testo.___ Þann 17. Júní, klukkan 20:00, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, bjóðum við ykkur á kvöldstund helgaða samhljómi ólíkra radda í Gerðarsafni. Á þessum degi munum við kanna togstreituna sem felst í sjálfsmyndinni, hvað það er að tilheyra og skoða gagnkvæm tengsl þvert yfir landamæri. Við munum varpa fram spurningum og íhuga þær í sameiningu.
