Lúppa | Consider to be Allies & Kristín Karólína Helgadóttir
Þriðja útfærsla Lúppu er samtal tveggja vídeóverka sem fjalla á sinn hátt um samspil náttúru og markaðssetningar, umbreytingu, ferðamennsku og þránna til að upplifa eitthvað stórkostlegt. VerkiðGetur þú hugsað í sviðsmyndum?(2022) eftir Kristínu Karólínu Helgadóttur var unnið í námunda við Vatnajökul í lok heimsfaraldurs þar sem draumum, auglýsingum, hamfarahlýnun, samfélagsmiðlum og túrisma ægir saman. Kristín var nýflutt úr hringiðu meginlands Evrópu í dreifbýl Öræfin. Flutningurinn varð kveikja að verkinu sem er leikur að ólíkum sviðsmyndum, spá um hið óorðna, mögulega heimsendi. Verkið var

