Jeremy Deller: Landlæg hamingja
Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili með þeim sem mæta henni. Sýning Deller tekur yfir báða sali Gerðarsafns með Triumph of Art (2026) og Warning Graphic Content (1993-2026).

