Lúppa: Una Margrét Árnadóttir
VerkinHeilnudd(2013) ogKlóraðu mér aðeins(2022) eftir Unu Margréti Árnadóttur eru sýnd í Lúppu frá 26. 02. – 26. 04. Verkin voru nýlega fengin í safneign Gerðarsafns. Una Margrét Árnadóttir (1985) er myndlistarmaður búsett í Reykjavík. Hún kynntist videómiðlinum fyrst á námskeiði þegar hún var 10 ára og segir það hafa opnað ýmislegt fyrir sér. Una skilgreinir sig ekki sem vídeólistamann þó hún nýti miðilinn oft. Fyrir henni er vídeóið frekar vettvangur fer performatívuna sem virðist elta hana í gegnum ferilinn.
