Sumarnámskeið: Menningarkrakkar 6-9 ára

Gerðarsafn býður upp á tvö námskeið í sumar fyrir 6-9 ára börn. Skráning er hafin á Abler https://www.abler.io/shop?country=IS&mode=programs… Myndlistarnámskeið 6. – 10. júlí, 20 pláss Á námskeiðinu fá krakkar að kynnast ýmsum gerðum myndlistar. Þau munu búa til skúlptúra, teikna, ljósmynda, mála og vinna í allskyns efni! Meðfram myndlistarkennslu verður lögð áhersla á útileiki og hópefli.
