Bergmál

Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða. Heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur. Upphafspunktur verkanna á sýningunni eru blekteikningar sem unnar eru í flæði og í beinu samtali milli undirmeðvitundar og handar. Í gegnum marglaga vinnuferli umbreytist hin óhefta lína frá handgerðri teikningu yfir í stafrænt útsaumuð verk sem birtast á mörkum hins óhlutbundna og fígúratífa. Verk Rögnu snúast um sköpunarferlið sjálft – samspil lita, áferða og sagna sem felast í mynstrum og táknum textílsins. Með því að sameina h

