Stór heimur

Á sýningunni getur að líta ný og nýleg verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson, unnin á síðastliðnum fimm árum. Helgi Þorgils hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferlisins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi. Á löngum ferli hefur myndmál hans verið í stöðugri þróun, þar sem tilvist mannsins er í forgrunni. Þá hefur megináhersla hans verið á málverkið en hann vinnur jöfnum höndum með fjö
