Bjarmaband

Á sýningunni getur að líta úrval verka eftir Frosta Fjalar, listamann sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Frosti, sem áður hét Jakob Jónsson, átti að baki langan og sérstakan feril sem spannaði meira en hálfa öld. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratug síðustu aldar dró hann sig í hlé og tók hvorki þátt í sýningum né var virkur á opinberum vettvangi eða innan myndlistarsamfélagsins. Þrátt fyrir það hélt hann áfram að vinna af mikilli festu og byggði upp umfangsmikið safn verka. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri

