Fylling
Sýningarrými Hafnarborgar eru byggð utan um reisulegt hús sem staðið hefur við Strandgötu 34 síðan 1921, þá heimili og apótek. Aðalsalur Hafnarborgar ber þess merki þar sem bogadregin framhlið eldra hússins er áberandi kennileiti salarins. Eitt af aðalverkum sýningarinnar leikur sama leik – lágreist skilrúm teygir sig um rýmið, mótar sig eftir salnum en stikar þó nýtt rými innan þess – tómarými, nýtt svið, mögulegan leikvang.Önnur verk eru líka unnin sérstaklega fyrir sýninguna: skúlptúrar, myndverk og pappírsverk, verk sem búa til fínlega frásögn sem reiðir sig á eiginleika rýmisins, efni þes

