SýningaútboðÓkeypis
Haustsýning Hafnarborgar 2027 – kallað eftir tillögum
Hafnarborg óskar eftir tillögum að haustsýningu 2027 frá sýningarstjórum. Markmiðið er að velja til samstarfs sýningarstjóra eða sýningarstjórateymi sem leggur fram áhugaverða sýningartillögu. Upprennandi sýningarstjórar eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Frestur er til 6. september 2026.


