Heiðvirðir einstaklingar

Sýningin hverfist um langvarandi og lítt rædd samskipti milli Póllands og Íslands í gegnum tíðina – sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Frá Póllandi streymdu til dæmis kol, textíll, bílar, traktorar og Prince Polo mörgum áratugum áður en fólksflutningar tóku að móta íslenskt samfélag að því marki sem við þekkjum nú. Titill sýningarinnar er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaðiTímansárið 1991: „Heiðvirðir einstaklingar frá Póllandi leita að sumarvinnu á Íslandi ‘91, svo sem í skógrækt.“ Þá fangar þetta samspil einlægni, bja

