Konur stíga fram - Svipmyndir 30 kvenna í íslenskri myndlist
Svipmyndir 30 kvenna í íslenskri myndlist

Í ár er liðin öld frá því konur á Íslandi öðluðust kosningarrétt. Af því tilefni býður Listasafn Íslands gestum að skoða verk 30 kvenna, sem lögðu sitt af mörkum til að ljá íslenskum konum rödd svo þær mættu öðlast aukna vitund um hag sinn og stöðu. Svo virðist sem íslenskum listakonum hafi frá öndverðu skilist að sá sem ekki á sér sjálfstæða tjáningu á sér varla teljandi frelsi. Öll eru verkin á sýningunni eru úr fórum Listasafns Íslands og eru því ekki tæmandi úttekt á þessari merku og margslungnu sögu. Bæði er að safneignin er takmörkuð og oft tilviljun háð hvað verk hafa borist safninu og

