Krakkaveldi : Plakatasmiðja

Hvaða skilaboð vilt þú setja út í heiminn?Krakkaveldi býður til plakatasmiðju í tengslum við sýningu Jeremy Deller, Landlæg hamingja, á Gerðarsafni. Aðgangur ókeypis og öll velkomin! Unnið er að skilaboðum sem krakkarnir vilja miðla til samfélagsins og þau sett á plaköt sem svo eru sett upp í nærumhverfi safnsins. Krakkaveldi er listhópur þar sem börn vinna í samstarfi við fullorðna að pólitískum listgjörningum. Krakkaveldi telur að fullorðnir gætu haft gott af því að hlusta meira á börn. Börn eru þriðjungur jarðarbúa en hafa þó minnst lýðræðislegt vald í samfélagi okkar – og Krakkaveldi vinnu

