Óður til lita
Sveinn Björnsson(1925-1997) var afkastamikill myndlistarmaður sem var lengst af búsettur í Hafnarfirði. Sveinn hefði orðið 100 ára í ár og því efnir Hafnaborg til sýningar á verkum hans í Sverrissal safnsins. Sveinn vann einkum með málverk en gerði einnig teikningar, klippimyndir og keramikverk. Skipta má ferli hans í þrjú tímabil: fyrst komu myndir af sjósókn, svo fantasíur en síðustu æviárin gekkst hann litnum á hönd og málaði eingöngu abstrakt olíumálverk en verkin á sýningunni eru öll frá þessu síðasta tímabili.

