Orka

Steina (Steinunn Briem Bjarnadóttir Vasulka) var fyrst íslenskra myndlistarkvenna fulltrúi þjóðarinnar á Feneyjatvíæringnum.Vasulka-stofa sýnir nú vídeóinnsetningu hennar Orku, sem Steina sýndi í íslenska skálanum í Feneyjum árið 1997. Í verkinu birtist íslensk náttúra áhorfandanum á áhrifaríkan hátt, ekki síst vegna stafrænnar úrvinnslu Steinu á upptökum frá Íslandi. Steina leitast við að miðla annars konar sýn á íslenska náttúru í verkum sínum, þar sem áhorfandinn sér landslagið með öðrum augum en sínum eigin – augum vélarinnar.
14. september 2017 – 22. apríl 2018
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík
Listasafn Íslands
Heimasíða
