Óþekkt alúð
Sýningin sprettur út frá þörfinni að finna töfra í heimi sem virðist að mörgu leyti vera göldrum firrtur, á tímum án bjartrar vonar. Út frá þrá í hið yfirskilvitlega á tíma þar sem allt virðist þurfa að vera skilgreinanlegt. Þá er titill sýningarinnar tilkominn út frá hugsun um töfra sem fela í sér sameiginlega heilun og hugmynd um betri heim – nokkuð sem sumir kynnu að kalla háleitt eða óraunsætt. Ekkert er þó svo fráleitt að ekki sé hægt að láta sig dreyma um það. Um töfra sem bera eiginleika alúðar – sem flestir taka ekki eftir í hversdagsleikanum – en þessi alúð skilgreinir veruleikann sem

