Pablo Picasso í safneign Listasafns Íslands - Jacqueline með gulan borða / Jacqueline au ruban jaune (1962)
Jacqueline með gulan borða / Jacqueline au ruban jaune (1962)

Listasafn Íslands býður gestum að upplifa verk Pablos Picasso, þekktasta listamanns 20. aldarinnar, um leið og veitt er innsýn í list meistarans spænska og sögu verksins, með textum og viðtölum. Verkið var nýlega í láni á sýningum í National Portrait Gallery í Lundúnum og Museo Picasso í Barcelona en er nú komið til baka og er sýnt í safnbyggingu Listasafns Íslands. Jacqueline Roque Picasso, ekkja listamannsins, gaf frú Vigdísi Finnbogadóttur höggmyndina af sjálfri sér. Sem forseti Íslands kaus frú Vigdís að taka rausnarskapinn sem gjöf handa þjóðinni. Í framhaldi af þessari einstæðu ákvörðun

