Rúna:letur

Stafir geyma meira en merkingu. Að baki þeim býr hreyfing, taktur, snerting og minni. Letur tengir saman hönd og auga, þann sem skrifar og þann sem les, fortíð og samtíð í gegnum línu og form. Sýningin beinir sjónum að leturgerð listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttir, f. 1926), sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur nú endurgert í stafrænu formi. Letrið birtist upprunalega í lok sjötta áratugarins í bókinniGlaðheimakvöld, þar sem einkennandi form og hrynjandi þess koma þegar skýrt fram, auk þess sem það ber með sér handbragð og tíðaranda.

