Sýningarsalir tímabundið lokaðir á efri hæð
Sýningarsalir á efri hæð safnsins eru lokaðir tímabundið þar sem verið er að skipta um sýningar. Sýningin Corpus opnar á miðvikudaginn 20.ágúst kl: 18:00. ÁCorpusmá finna verk eftir Arvidu Byström, Herttu Kiiski, Jeanette Ehlers, Klāvs Liepiņš & Renāte Feizaka, Salad Hilowle og Sunnevu Ásu Weisshappel, sem vinna innan efnisleika, vefnaðar, skúlptúrs og ljósmyndunar. Hvert á sinn hátt rannsaka listamennirnir tengsl okkar við eigin líkama, bæði í rými og í sambandi við aðrar verur, og stöðu líkamans í framþróunarmiðuðum heimi.

