„Við sjáum það sem við viljum sjá“
Á sýningunni getur að líta úrval verka sem spanna feril listakonunnarElínar Sigríðar Maríu Ólafsdóttur, frá upphafi til dagsins í dag, en Elín var fyrr á árinu útnefnd listamanneskja hátíðarinnar Listar án landamæra 2024. Sköpunarkraftur og listhæfileikar Elínar komu snemma fram en ung að aldri var hún byrjuð að skapa listaverk í máli og myndum. Sömuleiðis hefur leiklist og skapandi tjáning á sviði verið stór þáttur í lífi Elínar en hún hefur starfað með leikhópnum Tjarnarleikhúsinu um árabil, gefið út ljóðabækur og komið að öllum þáttum leiksýninga, svo sem leikmyndagerð og búningahönnun.

