Íslenskir listamenn
Uppgötvaðu hæfileika íslenska listasamfélagsins. Skoðaðu verk listamanna, heimsæktu vefina þeirra og láttu þetta hvetja þig áfram.
5 listamenn

Blómin á brúninni
Geirþrúður Þorbjörnsdóttir
Mixed Media · Reykjanesbær · Til sölu
Eigandi - fondurlist.is Hef verið í svo mörgu undanfarin ár - of mikið að telja allt upp en er áhugasöm á flestu sem tilheyrir Föndri - Myndlist ofl Hef haldið öll námskeið hjá Föndurlist í gegn um árin Kortagerð - Skartgripagerð - Pergamano - Blómagerð með perlum - Resin Art - Abstract art - Ýmis jólaföndur námskeið - Kertagerð - Macrame - Perlusaum - Alcohol Blek - og svo bætist alltaf eitthvað við :-)

Systurnar þrjár — 39.000 kr.
Hildur Kristín Hilmarsdóttir
Akrýlmálun · Selfoss · Til sölu
Ég fæst við margt, akríl, blek, vatnsliti og fl. eiginlega bara það sem mér dettur í hug þá stundina. Ég er menntaður textilkennari en hætt að vinna svo ég er í fullu starfi við að skapa. Auk myndlistar sem ég er nýbyrjuð að sinna eftir langt hlé þá hef ég hannað, framleitt og selt minjagripi og gjafavöru, veggmyndir, gjafakort og umbúðir og fékk á sínum tíma nýsköpunarstyrk Rannís. Nú er ég að leitast við að bæta mig í vatnslitun fór á eitt námskeið í vor og tek 2 tveggja daga námskeið á Alþjóðlegu vatnslitaráðstefnunni í sept. Fyrra hjá Prafull Sawant og svo hjá Birni Bergström. Ég hef verið óhrædd við að prófa mig áfram í listsköpun og er óhrædd við að fara eigin leiðir en þigg glöð gagnrýni og leiðsögn. Ég hef alltaf verið skapandi og prófað mig áfram í ýmsu, hönnun prjónavöru og fl. Mig langarmtil að bæta textil í verk mín með eh hætti. Ég hef hug á að koma mér á framfæri sem myndlistakonu www.hkh-art .com er í vinnslu en sýnileg og nýbúin að stofna Istagram fyrir myndlistina

Sólveig Sigríður -- Solla Magg.
Akrýlmálun · Reykjanesbæ
Er búinn að vera í myndlist í 10 ár - hef numið í Myndlistarskóla Kópavogs - geri fjölbreyttar myndir - allt hér á síðunni er til sölu hafa samband - [email protected]

Hrafn — 19.900 kr.
Karen Rós Brynjarsdóttir
Annað · Reykjanesbær · Til sölu
Ég heiti Karen Brynjarsdóttir, er fædd árið 1996. Ég hef alltaf verið skapandi og elskaði að teikna þegar ég var yngri. Ég byrjaði að mála þegar ég var á listnámsbraut árin 2012-2016. Ég hef tekið þátt í einni samsýningu (2016) og haldið eina einkasýningu (2017) en hef aðallega selt verk mín á netinu. Viðfangsefni mitt er samspil lita og forma í náttúrunni. Ég mála bjartar og litríkar landslagsmyndir á striga og geri einnig teikningar á pappír. allar myndirnar eru á Íslandi - Reykjanesbæ

Lára Magnúsdóttir
Akrýlmálun · Akranesi
Lára hefur haldið sjö einkasýningar Í verkunum mínum er ég að vinna ró og áreiti sem mætast í skapandi flæði. Er að vinna verk með akrýl penna og málningu. Verkin endurspegla innra ferðalag — þörfina fyrir að draga sig í hlé frá áreiti nútímans og finna skjól í sköpuninni. Ég nota listsköpun sem tvíþætta upplifun: annars vegar sem leit að ró og kyrrð í gegnum myndlistina, og hins vegar sem úrvinnsla á því áreiti sem við upplifum daglega. Í verkunum umbreytist þetta ástand í lit, form og mynstur, þar sem hugurinn fær að hvílast á meðan tilfinningarnar fá að flæða frjálsar.
Ertu listamaður á Íslandi?
Skráðu þig í listamannaskrá Föndurlistar — algjörlega ókeypis.
Eigin síða
Fáðu eigin listamannasíðu með SEO og deilanlegum hlekk
Seldu verk þín
Merktu verk til sölu — kaupendur hafa beint samband við þig
100% ókeypis
Engin þóknun, engin mánaðargjöld — algjörlega gjaldfrjálst
Sýnileiki
Náðu til kaupenda og listaunnenda á Íslandi