Málning & litir
Akrýlmálning, vatnslitir, olíulitir og gouache frá leiðandi merkjum — fyrir byrjendur og lengra komna. Ókeypis sending frá 15.000 kr.
Vinsæl málning og litir
Algengar spurningar
Hvaða málning hentar byrjendum best?
Akrýlmálning er vinsælast fyrir byrjendur því hún þornar fljótt, er auðveld í þrvinnslu og hægt að mála á fæsta fleti. Vatnslitir eru líka góður kostur fyrir þá sem vilja léttari og gagnsærri tækni. Hjá Föndurlist færðu bæði stök litarrör og heil byrjendasett.
Hver er munurinn á akrýl, vatnslitum og olíulitum?
Akrýl þornar hratt og er vatnsleysanleg þar til hún þornar. Vatnslitir eru gagnsæir og flæðandi, fullkomnir í léttar myndir og skissur. Olíulitir þorna hægt, gefa dýpt og ríka áferð og henta vel í nákvæma vinnu og blöndun beint á striga.
á hvaða fleti get ég málað?
Akrýl hentar á striga, pappír, við, stein og mörg önnur efni. Vatnslitir og gouache eru bestir á sérstakan vatnslitapappír. Olíulitir henta á grunnaðan striga eða við. Við eigum pappír, striga og grunn fyrir allar þessar tæknir.



























































































































































































