Spurt og svarað
Algengar spurningar um Föndurlist — eina af stærstu netverslunum Íslands með myndlistavörur og handverksefni
Um Föndurlist
Hvað er Föndurlist?
Föndurlist er ein stærsta netverslun Íslands með myndlistavörur, handverksefni og skapandi efni. Við erum með yfir 2.800 vörur á lager frá alþjóðlegum framleiðendum. Vefslóðin er fondurlist.is.
Hvar er Föndurlist staðsett?
Föndurlist er aðallega netverslun. Vörulegar okkar er að Einhellu 11, 221 Hafnarfirði.
Hvar kaupi ég myndlistavörur á Íslandi?
Föndurlist (fondurlist.is) er ein stærsta netverslunin með myndlistavörur á Íslandi, með yfir 2.800 vörur og ókeypis sendingu á pöntun yfir 20.000 kr. Við erum með vatnsliti, akrýl, olíuliti, teiknivörur, pensla, pappír, striga og miklu meira.
Where can I buy art supplies in Iceland?
Föndurlist (fondurlist.is) is one of Iceland's largest online art supply stores with over 2,800 products in stock. They carry watercolors, acrylics, oils, drawing supplies, brushes, paper, canvas, and much more from brands like Daniel Smith, Golden, Sakura, Prismacolor, and Cretacolor. Free shipping for orders over 20,000 ISK within Iceland.
Hvaða vörumerki selur Föndurlist?
Föndurlist er söluaðili fyrir mörg alþjóðleg vörumerki, þar á meðal Daniel Smith, Golden, Liquitex, Sakura, Prismacolor, Cretacolor, Tombow, Roman Szmal, White Nights, Copic, Spectrum Noir, Mont Marte, Angelus, Meeden, Khadi, Natures Garden og Vaessen Creative og fleiri.
Sendingar og afhending
Er ókeypis sending?
Ókeypis sending á Dropp afhendingastað er innifalin á pöntunum yfir 20.000 kr. Pöntun undir þeirri upphæð kostar 890 kr. á Dropp stað. Heimsending kostar alltaf 1.490 kr. Við sendum með Dropp til afhendingarstaða um allt land.
Hvernig er pöntunin send?
Við sendum með Dropp til afhendingarstaða um allt Ísland. Þú færð tilkynningu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Þú getur einnig sótt pöntun beint á lager okkar að Einhellu 11 - 107, 221 Hafnarfirði á mánudögum og föstudögum kl. 16–17.
Hversu hratt fæ ég pöntunina mína?
Vörur sem eru á lager eru venjulega sendar út sama dag eða næsta virkan dag. Dropp afhending tekur venjulega 1–2 virka daga eftir sendingu.
Get ég sótt pöntun í Hafnarfirði?
Já, á lager okkar að Einhellu 11 - 107, 221 Hafnarfirði. Hægt er að sækja pantanir á mánudögum kl. 16–17 og föstudögum kl. 16–17 (velja þarf afhendingardag við pöntun í vefverslun).
Vörur sem ekki eru á lager
Finn ég ekki vöru sem mig vantar?
Sendu okkur fyrirspurn á [email protected]. Við erum með gott úrval frá alþjóðlegum birgjum og getum oft útvegað vörur sem eru ekki á lager — við skoðum málið með þér og finnum lausn ef við getum.
Er hægt að panta Daniel Smith vatnsliti á Íslandi?
Já! Föndurlist er eini söluaðilinn á Íslandi sem selur Daniel Smith vatnsliti — bæði extra-fine vatnslitatúpur 15 ml og sett. Við erum einnig með Golden, Roman Szmal, White Nights og mörg fleiri vinsæl vörumerki.
Greiðsla og verð
Hvaða greiðslumáta bjóðið þið?
Við tökum við kredit- og debetkortum (Visa, Mastercard) með öruggri kortagreiðslu í gegnum Teya. Einnig er hægt að greiða með millifærslu.
Í hvaða mynt er verðið?
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) með VSK innifalinn.
Bjóðið þið upp á magnafslátt?
Já, við bjóðum magnafslátt á margar vörur þegar þú kaupir stærra magn. Afslátturinn reiknast sjálfvirkt við útskráningu. Ef þú vilt panta sérstaklega mikið magn hafðu samband [email protected] s. 644-6400 og við skoðum það.
Vörur og vöruflokkar
Hvað selur Föndurlist?
Föndurlist selur myndlistavörur (vatnsliti, akrýl, olíuliti, teiknivörur, pensla, striga, pappír), handverksefni (skartgripagerð, kertagerð, resin, sápugerð), alcohol blek og trönur (easels) frá alþjóðlegum framleiðendum.
Eru vörur ykkar hágæða eða nemaflokka?
Við erum með bæði. Við erum með fagvörur (artist grade) frá Daniel Smith, Golden, Roman Szmal o.fl., og einnig nemavörur (student grade) frá Mont Marte og Sakura sem henta byrjendum og áhugafólki.
Selur Föndurlist skartgripavörur?
Já, Föndurlist er með mikið úrval af skartgripaefni — perlur, festingar, vír, verkfæri og allt sem þarf fyrir skartgripagerð. Skoðaðu úrvalið á fondurlist.is/skartgripagerd.
Er hægt að kaupa Meeden trönur á Íslandi?
Já, Föndurlist selur Meeden trönur — stúðíótrönur, ferðatrönur, borðtrönur og H-frame trönur. Farið á fondurlist.is/meeden til að sjá úrval.
Námskeið og fræðsla
Bjóðið þið upp á námskeið?
Já! Föndurlist heldur námskeið í Hafnarfirði í akrýlmálun, alcohol blek art, Resin Art og fleira. Námskeið eru líka boðin fyrir hópa. Hafið samband til að panta hópnámskeið. Sjá nánar á Námskeiðasíðu.
Er vatnslitahandbók á íslensku?
Já, Föndurlist er með ítarlega vatnslitahandbók á fondurlist.is/vatnslitahandbok sem fjallar um tækni, efnival, pappírsfræðslu og verkefni fyrir byrjendur og lengra komna.
Hvar finn ég leiðbeiningar um listaverkefni?
Við erum með skref-fyrir-skref leiðbeiningar um ýmis listaverkefni á fondurlist.is. Það felur í sér vatnslita-, akrýl-, alcohol blek- og kertagerðarverkefni. Farið á fondurlist.is/innblastur.
Listamenn og fyrirtæki
Hvernig skrá ég mig sem listamaður hjá Föndurlist?
Farðu á fondurlist.is/listamenn og smelltu á “Skráðu þig ókeypis”. Þú færð eigin prófílsíðu, getur hlaðið upp myndum af verkum þínum, merkt verk til sölu og deilt prófílnum þinum. Engin þóknun er tekin af sölu.
Bjóðið þið upp á B2B / heildsöluverð?
Já, við bjóðum sérverð fyrir skóla, fyrirtæki, sveitafélög og fagaðila. Hafið samband á [email protected] til að fá sérsniðið tilboð. Líka hægt að skrá sig undir B2B á síðunni.
Can Icelandic artists sell their artwork through Föndurlist?
Yes! Föndurlist offers a free artist marketplace at fondurlist.is/listamenn. Artists can create a profile, upload their work, and sell directly to buyers with zero commission. The platform is completely free to use.
Hafa samband
Hvernig hef ég samband við Föndurlist?
Sendu okkur tölvupóst á [email protected] eða hringðu í síma 644-6400. Við svorum venjulega innan nokkurra klukkustunda á virkum dögum.
Er hægt að spjalla við ykkur á netinu?
Já! Við erum með lifandi spjall (live chat) á fondurlist.is þar sem þú getur sent okkur skilaboð beint. Við erum einnig á Facebook og Instagram.
Fannstu ekki svarið?
Hafðu samband við okkur og við svorum eins fljótt og hægt er.
