Sérpantanir
Skoðaðu vefsíðu framleiðandans og segðu okkur hvað þú hefur áhuga á — við gefum þér gott verð og frekari upplýsingar.
Hvernig virkar sérpöntun?
Skoðaðu vörurnar
Farðu á vefsíðu framleiðandans og finndu það sem þú hefur áhuga á.
Afgreiðslutími 3–6 vikur
Vörur eru pantaðar beint frá framleiðanda og sendar til okkar.
Afhending
Þegar vörur berast, höfum við samband og skipuleggjum afhendingu.
Hversu langan tíma tekur sérpöntun?
Afhendingartími fer eftir birgi og sendingarleiðum. Hér er yfirlit.
| Birgir | Áætlaður tími |
|---|---|
| SLS Arts (Daniel Smith, Golden, Gamblin, o.fl.) | 3–5 vikur |
| Notions Marketing (Sakura, Princeton, Speedball) | 3–5 vikur |
| Vaessen Creative | 2–3 vikur |
| Natures Garden | 2–4 vikur |
| JC Magnetics (seglar) | Hafa samband |
| Meeden (trönur og búnaður) | Hafa samband |
* Tímasetningar eru áætlaðar og geta breyst eftir framboði og aðstæðum.
Framleiðendur sem við vinnum með
Við bjóðum upp á vörur frá 24 alþjóðlegum framleiðendum — sumir á lager, aðrir í sérpöntun. Smelltu á nafn til að heimsækja framleiðandann.
Sérpantanir eftir birgjum
7 birgjar í boði
Hafðu samband — við gefum þér tilboð
Við erum alltaf tilbúin að hjálpa þér að finna réttu vörurnar á besta verði.
Stærra magn eða aðrar einingar?
Vantar þér stærra magn, aðrar einingar eða betra verð? Sendu okkur línu og við skoðum málið.
Reglulegar safnsendingar frá New York
Við erum með reglulegar flug safnsendingar frá New York — hafðu samband og við getum ef til vill reddað því sem þig vantar.
Lágmörkum flutningskostnað
Með safnsendingum lágmörkum við flutningskostnaðinn fyrir þig — þannig fáum við bestu verðin.
Vantar eitthvað sem er ekki á listanum?
Segðu okkur hvað þú leitar að — við athugum hvort við getum útvegað það.
Ekki hika — hafðu samband! 😊
Vantar þig eitthvað sem er ekki á listanum?
Hafðu samband á [email protected] og við athugum hvort við getum útvegað það.


