Fara í efni
BLACK FRIDAY 24.–30. nóvember

Handgerður pappír frá Indlandi

Khadi handgerður pappír

Pappír úr 100% bómull, ausinn í höndunum. Sterkur, sýrulaus og með náttúrulega áferð — fyrir vatnsliti, blek, teikningu, bókband og kortagerð.

Hér finnurðu núverandi lagerúrval og sérstaka kynningu á væntanlegum útfærslum — vatnslitapappír í öllum þyngdum, umslög og skissubækur.

Khadi handgerður vatnslitapappír úr 100% bómull
Handgerður Khadi-pappír með náttúrulegum rifnum köntum.

UM KHADI PAPPÍR

Ausinn í höndunum úr 100% bómull

Khadi Papers framleiðir handgerðan pappír á Indlandi. Hver örk er mótuð í höndunum úr hreinum bómullartrefjum í stað viðarkvoðu. Það gefur sterkan, sýrulausan pappír sem þolir endurteknar bleytingar og gulnar síður með tímanum.

Sterkur og stöðugur

Bómullartrefjarnar gefa langa, sterka trefjauppbyggingu. Pappírinn þolir sköfun, núning og endurteknar bleytingar betur en pappír úr viðarkvoðu.

Náttúruleg áferð

Deckle-kantar og lífræn yfirborðsáferð myndast þegar pappírinn er ausinn í höndunum. Hver örk er því einstök.

Fjölnota

Hentar vatnslitum, bleki, gouache, teikningu, þrykki, bókbandi og kortagerð — léttari arkir fyrir teikningu, þykkari fyrir vatnsliti.

NÚ Á LAGER

Khadi á lager núna

Þessar Khadi-vörur eru til á lager samkvæmt núverandi lagerstöðu. Opnaðu vörusíðuna til að sjá verð, nánari upplýsingar og panta.

VÆNTANLEGT Á NÆSTUNNI · EKKI Í SÖLU ENN

Væntanlegt Khadi-úrval

Þessar útfærslur eru væntanlegar til landsins á næstunni. Verðin eru birt til viðmiðunar en ekki er hægt að kaupa eða forpanta hér enn. Verð geta tekið breytingum.

Vatnslitapappír — arkir

Handgerður pappír A7 · 150 g/m²

Væntanlegt

Handgerður pappír A7 · 150 g/m²

Pakki með 20 örkum · 150 g/m² · 7 × 10 cm

Örsmáar handgerðar arkir úr 100% bómull, tilvaldar fyrir lítil kort, merkimiða og skissur á ferðinni. Rifnir kantar gefa handgerð yfirbragð.

Mynd sýnir sambærilega Khadi-pappírspakkningu í öðru broti; útfærslan hér er minni, 7 × 10 cm.

810 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Handgerður pappír A6 · 150 g/m²

Væntanlegt

Handgerður pappír A6 · 150 g/m²

Pakki með 20 örkum · 150 g/m² · 11 × 15 cm

Léttur handgerður bómullarpappír í A6, góður fyrir kort, blek, teikningar og léttar vatnslitaæfingar.

1.140 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Handgerður pappír A5 · 150 g/m²

Væntanlegt

Handgerður pappír A5 · 150 g/m²

Pakki með 20 örkum · 150 g/m² · 15 × 21 cm

Fjölnota handgerður pappír í A5 fyrir teikningar, blek, kort og blandaða tækni. Náttúrulegir rifnir kantar á öllum örkum.

1.740 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Handgerður pappír A4 · 150 g/m²

Væntanlegt

Handgerður pappír A4 · 150 g/m²

Pakki með 20 örkum · 150 g/m² · 21 × 30 cm

Handgerður bómullarpappír í A4, léttari gerð sem hentar teikningum, bleki, prentun og blandaðri tækni.

Mynd sýnir sambærilega Khadi A4-pakkningu; þessi útfærsla er 150 g/m².

2.630 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Handgerður pappír A3 · 210 g/m²

Væntanlegt

Handgerður pappír A3 · 210 g/m²

Pakki með 20 örkum · 210 g/m² · 30 × 42 cm

Stórar handgerðar A3-arkir í meðalþyngd, góðar fyrir stærri teikningar, blandaða tækni og léttari vatnsliti.

Mynd sýnir sambærilega Khadi A3-pakkningu; þessi útfærsla er 210 g/m².

5.250 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A6 · 320 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A6 · 320 g/m²

Pakki með 20 örkum · 320 g/m² · 11 × 15 cm

Þykkur handgerður vatnslitapappír úr 100% bómull í A6, þolir vel bleytu og hentar litlum vatnslitamyndum og kortum.

1.660 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Ferkantaður pappír 20 × 20 cm · 320 g/m²

Væntanlegt

Ferkantaður pappír 20 × 20 cm · 320 g/m²

Pakki með 20 örkum · 320 g/m² · 20 × 20 cm

Ferkantaðar handgerðar arkir úr 100% bómull, 320 g/m². Vinsælt snið fyrir vatnsliti, blek og blandaða tækni.

2.830 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A3 · 320 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A3 · 320 g/m²

Pakki með 20 örkum · 320 g/m² · 30 × 42 cm

Stórar handgerðar vatnslitaarkir í A3, 320 g/m² úr 100% bómull. Þola mikla bleytu og henta blautt í blautt.

5.710 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A6 · 640 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A6 · 640 g/m²

Pakki með 10 örkum · 640 g/m² · 11 × 15 cm

Mjög þykkur handgerður vatnslitapappír, 640 g/m². Næstum eins og pappaspjald — þolir mikla bleytu án þess að bylgjast verulega.

Mynd sýnir sambærilega Khadi 640 g/m² pakkningu í stærra broti; útfærslan hér er A6.

1.470 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A5 · 640 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A5 · 640 g/m²

Pakki með 10 örkum · 640 g/m² · 15 × 21 cm

Afar þykkur handgerður vatnslitapappír í A5, 640 g/m². Hentar kröftugri vatnslitatækni og ítrekaðri bleytu.

Mynd sýnir sambærilega Khadi 640 g/m² pakkningu í stærra broti; útfærslan hér er A5.

2.180 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A4 · 640 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A4 · 640 g/m²

Pakki með 10 örkum · 640 g/m² · 21 × 30 cm

Þykkur handgerður vatnslitapappír í A4, 640 g/m² úr 100% bómull. Stöðugur grunnur fyrir blautt í blautt og þung lög.

3.280 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Vatnslitapappír A3 · 640 g/m²

Væntanlegt

Vatnslitapappír A3 · 640 g/m²

Pakki með 10 örkum · 640 g/m² · 30 × 42 cm

Stórar og mjög þykkar handgerðar vatnslitaarkir, 640 g/m². Fyrir kröfuhörðustu vatnslitavinnu í fullri stærð.

5.250 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Umslög

Umslög C7 · 100 g/m²

Væntanlegt

Umslög C7 · 100 g/m²

Pakki með 20 umslögum · 100 g/m² · 8 × 11 cm

Lítil handgerð umslög úr 100% bómull með rifnum köntum. Passa við lítil kort og merkimiða — fallegur rammi um handskrifuð skilaboð.

Mynd sýnir Khadi handgerð bómullarumslög; stærðin hér er C7.

1.740 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Umslög C6 · 100 g/m²

Væntanlegt

Umslög C6 · 100 g/m²

Pakki með 20 umslögum · 100 g/m² · 12 × 16 cm

Handgerð bómullarumslög í C6, algengri kortastærð. Náttúrulegir rifnir kantar og áferð handgerðs pappírs.

2.310 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Umslög C5 · 100 g/m²

Væntanlegt

Umslög C5 · 100 g/m²

Pakki með 20 umslögum · 100 g/m² · 16 × 23 cm

Stærri handgerð umslög úr bómull, henta A5-kortum og boðskortum. Handgerð áferð og rifnir kantar.

Mynd sýnir Khadi handgerð bómullarumslög; stærðin hér er C5.

3.330 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Skissubækur og blokkir

Þykk skissubók (fatbook) 21 × 21 cm · 100 g/m²

Væntanlegt

Þykk skissubók (fatbook) 21 × 21 cm · 100 g/m²

Ferkantuð · u.þ.b. 100 bls. · 100 g/m² · 21 × 21 cm

Þykk ferkantuð skissubók með fjölda handgerðra bómullarblaða. Milligróf áferð sem hentar teikningum, bleki og léttum vatnslitum.

3.930 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Skissubók (paperback) 15 × 15 cm · 150 g/m²

Væntanlegt

Skissubók (paperback) 15 × 15 cm · 150 g/m²

Ferkantuð · 30 bls. · 150 g/m² · 15 × 15 cm

Nett ferkantuð skissubók með mjúkri kápu og handgerðum bómullarblöðum. Góð fyrir skissur, kort og daglegar æfingar.

1.470 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Skissubók (paperback) 20 × 20 cm · 150 g/m²

Væntanlegt

Skissubók (paperback) 20 × 20 cm · 150 g/m²

Ferkantuð · mjúk kápa · 150 g/m² · 20 × 20 cm

Stærri ferkantuð skissubók með mjúkri kápu og handgerðum bómullarblöðum. Rúmgott snið fyrir skissur og blandaða tækni.

Mynd sýnir sambærilega Khadi paperback-skissubók í 15 × 15 cm; þessi útfærsla er 20 × 20 cm.

2.120 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Aflöng harðspjaldabók 13 × 32 cm · 210 g/m², gróf

Væntanlegt

Aflöng harðspjaldabók 13 × 32 cm · 210 g/m², gróf

Hörð kápa · aflöng · 210 g/m² · gróf áferð · 13 × 32 cm

Aflöng skissubók með harðri kápu og grófum handgerðum bómullarblöðum. Panoramasnið sem hentar landslagi og víðmyndum.

5.680 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Bókablokk 21 × 25 cm · 210 g/m², gróf

Væntanlegt

Bókablokk 21 × 25 cm · 210 g/m², gróf

Saumuð blokk · 210 g/m² · gróf áferð · 21 × 25 cm

Saumuð bókablokk úr grófum handgerðum bómullarpappír, tilbúin til innbindingar eða notkunar sem opin skissubók. 210 g/m².

5.680 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Blokkbók 13 × 16 cm · 210 g/m², gróf

Væntanlegt

Blokkbók 13 × 16 cm · 210 g/m², gróf

Saumuð blokk · 210 g/m² · gróf áferð · 13 × 16 cm

Lítil saumuð blokkbók úr grófum handgerðum bómullarpappír. Hentug til að hafa með sér fyrir skissur og vatnslitaæfingar.

Mynd sýnir sambærilega Khadi bókablokk í stærra broti; þessi útfærsla er 13 × 16 cm.

2.830 kr.

Verð til viðmiðunar · ekki í sölu enn

Spurt og svarað um Khadi pappír

Hvað er Khadi handgerður pappír?

Khadi Papers framleiðir handgerðan pappír á Indlandi úr 100% bómull. Hver örk er mótuð í höndunum úr bómullartrefjum, sem gefur sterkan, sýrulausan pappír með náttúrulegri áferð og rifnum köntum. Án viðarkvoðu endist pappírinn vel og gulnar síður með tímanum.

Í hvað er Khadi pappír notaður?

Khadi pappír hentar vatnslitum, bleki, gouache, teikningu, þrykki, bókbandi, kortagerð og blandaðri tækni. Þykkari útfærslur (320–640 g/m²) þola mikla bleytu og henta vatnslitum, meðan léttari arkir (100–210 g/m²) henta teikningu, bleki og prentun.

Af hverju skiptir 100% bómull máli?

Bómullarpappír er sterkari og stöðugri en pappír úr viðarkvoðu. Hann þolir endurteknar bleytingar, sköfun og núning betur, heldur lit vel og er sýrulaus. Það þýðir að verkin eiga að endast betur án þess að gulna.

Hvað merkir g/m² (gsm)?

Talan segir til um þyngd pappírsins á hvern fermetra, ekki stærð eða fjölda arka. Því hærri sem talan er, því þykkari og stöðugri er pappírinn gagnvart bleytu. 640 g/m² er næstum eins og þunnt pappaspjald.

Af hverju eru kantarnir rifnir?

Þetta eru svokallaðir deckle-kantar sem myndast þegar pappírinn er ausinn í höndunum. Þeir eru einkenni handgerðs pappírs og þykja fallegir, sérstaklega á kortum og innrömmuðum verkum.

Er hægt að panta væntanlegu vörurnar?

Ekki á þessari síðu. Væntanlega úrvalið er kynning og kemur til landsins á næstunni. Verðin eru birt til viðmiðunar en ekki er hægt að kaupa eða forpanta hér. Þar sem Khadi-vara er nú þegar til á lager birtist hún í stað þess í kaflanum «Á lager núna» með tengli á vörusíðu.